Geðveikt dugleg :)
26. september 2006 klukkan 00:19
Ég er búin að vera ekkert smá duglega í dag... þegar ég var búin að vinna fór ég beinustu leið í leikfimi og var þar í einn og hálfan klukkutíma. Ferlega þægilegt þegar að hlaupabrautirnar og fleira er með sér sjónvarpi þannig að ég gat bara verið að horfa á Nágranna og svoleiðis á meðan :)
Föstudagurinn var alveg ótrúlega fínn... ég fór með Sonju, Ella, Þórdísi og Bryndísi út að borða á Ítalíu (alveg ótrúlega fínn matur) og svo vorum við að djamma niðri í bæ en þar sem ég var að drepast í maganum drakk ég heldur lítið og hefði eiginlega bara átt að sleppa því og vera á bíl. Í staðinn fyrir að eyða peningum í leigubíl heim.
Jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað að viti. Hólmfríður :)
Hólmfríður Sjöfn Jónsdóttir